veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þetta andsvar. Ég lít þannig á að stjórnvöld á hverjum tíma eigi að stuðla að sameiningu og aukinni samvinnu allra landsmanna; stjórnvöld eigi að gæta hagsmuna landsins alls. Við Miðflokksmenn höfum reyndar orð um það sem við köllum Ísland allt. Ég sé ekki betur en að þessi ríkisstjórn sé á margan hátt að reka flein milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar, t.d. með þessu máli sem augljóslega mun koma niður á sveitarfélögum í landsbyggðunum í jöfnunarsjóðsfrumvarpinu sem átti að stuðla að því að öll sveitarfélög yrðu jöfn, jafn aum. Það læddist að manni að þetta væri gert af því að þá var sveitarfélögum hótað, ef þau ekki nýttu það sem var kallað vannýttur tekjustofn. Ég hef sagt það og segi það aftur að þegar venjulegt fólk sér hóp af fólki nálgast sér það hóp af fólki en vinstri menn sjá skattstofn. Við þessu er ekkert að gera. Þetta er bara það sem við búum við. Hins vegar, af því að hv. þingmaður benti réttilega á að nú eru ekki markaðir tekjustofnar lengur, langar mig að grípa tækifærið og biðjast enn afsökunar á því, líklega í fimmtugasta skipti, að ég skyldi styðja á sínum tíma lög um opinber fjármál sem er stærsta valdaafsal pólitískt kjörinna fulltrúa til embættismanna. Það hefðum við betur látið ógert.