156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:57]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir hans ræðu. Ég tek heils hugar undir hana. Mér fannst hann ramma dálítið vel inn í ræðu sinni þegar hann var að ræða um aðgerðir og áform þessarar ríkisstjórnar að það væri hreinlega verið að heyja stríð gegn sveitarfélögunum. Hann vísaði þar til jöfnunarsjóðsfrumvarpsins sem á að keyra í gegn án þess að verða við athugasemdum eða taka tillit til athugasemda sveitarfélaga sem finnst ansi freklega að sér vegið þar og að þar sé gerð atlaga að sjálfsákvörðunarrétti þeirra. Þannig að þetta er alveg hárrétt.

Þessi umræða hefur verið ansi fróðleg og gaman að fara í gegnum söguskýringar, bæði hv. þingmanns og annarra sem hafa verið hérna og tekið þátt í þessari umræðu í gegnum tíðina. Manni finnst einhvern veginn að í umræðu þeirra sem mæla þessu bót verði fólki endalaust tíðrætt um að þetta sé sanngirnismál, að þarna hafi stóru útgerðirnar þennan aðgang að auðlindinni og þess vegna græði þær svona mikið og það sé allt svo vont og agalegt. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér í því að arðurinn — sem er kannski ekki mestur í þessari grein í landinu en er ágætur, þetta eru fyrirtæki sem hafa þurft að fara í gegnum alls kyns sveiflur í sínum rekstri, breytingar á rekstrarumhverfi, miklar sveiflur í efnahagsumhverfi hvað varðar fiskstofna (Forseti hringir.) og slíkt — sé kannski vegna (Forseti hringir.) vel heppnaðra fjárfestinga og vöruþróunar og slíks en ekki bara vegna þessa aðgangs að auðlindinni eins og er verið að reyna að telja þjóðinni trú um (Forseti hringir.) að sé það vonda í þessu öllu.