veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir hans andsvar. Við erum sammála því að hér sé verið að ráðast að einni atvinnugrein af sérlega af mikilli hörku og óbilgirni, vil ég meina. Þessi áhugi ríkisstjórnarinnar á að veikja þessa helstu útflutningsgrein þjóðarinnar er að mínu mati illskiljanlegur og mér heyrist þingmaðurinn vera sammála mér og þeim sem þannig tala í þingsal. Við erum að takast á um grundvallarafstöðu til atvinnulífsins og verðmætasköpunar, til þess hvernig farið er með opinbert fé og hvernig það er innheimt og hverjir eiga að leggja til. Þarna er verið að ráðast á þessa einu atvinnugrein með mjög, eins og ég segi, óbilgjörnum hætti.
Mig langar í þessu seinna andsvari mínu að spyrja hv. þingmann (Forseti hringir.) hvort hann telji að hér sé um hreinan og kláran popúlisma að ræða.