veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur aftur fyrir prýðisgott andsvar. Vegna þess að í ræðu minni áðan sem byrjaði og endaði á orðunum: Hvers vegna? — gleymdi ég út af fyrir sig að láta í ljós svarið sem er augljóst og blasir við. Þeir heiðarlegri í hópi stjórnarliða hafa sagt til hvers refirnir voru skornir. Þeir hafa sagt: Við höfum þjóðina alla með okkur. Sjáið bara skoðanakannanirnar. Jú, stjórnin er búin að vinna skoðanakannanirnar, bara til hamingju. En þeir eru ekki orðnir Íslandsmeistarar, það gerist ekki fyrr en seinna. Og það er ekki víst að það gerist ef áhrifin af þessu og fleiri málum sem þau hafa komið hérna fram með verða eins og við óttumst; þetta mál, jöfnunarsjóðurinn o.s.frv. Ef þau verða til þess sem við óttumst, að það dragi kraftinn úr t.d. landsbyggðunum, þá er ekkert endilega víst að fjöldinn allur af fólki flykkist (Forseti hringir.) að baki þessari ríkisstjórn eftir að fyrstu fyrirtækin eru búin að loka eða búin að selja bátana eða eitthvað slíkt, ekki endilega víst.