veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir hans ræðu um þetta mál. Það verður örugglega seint sagt að við tveir, þ.e. sá sem hér stendur og hv. þingmaður, verðum sammála um efni þessa frumvarps en mig langaði samt að spyrja hv. þingmann út í það. Ég átti svolítið erfitt með að átta mig á því í hans ræðu hvort hann væri hreinlega alfarið á móti því að innheimt séu veiðigjöld eða auðlindagjöld af nýtingu auðlinda sem eru í sameign þjóðarinnar. Er hv. þingmaður alfarið á móti því eða getur hann séð það fyrir sér að einhverju leyti?
Hitt sem mig langaði til að spyrja út í er það að ég verð stundum ringlaður í umræðunni hérna á hinu háa Alþingi. Það er svo sem ekkert nýtt að ég verði ringlaður en mér finnst hv. fulltrúar stjórnarandstöðunnar stundum tala eins og hér sé um algjöra kollsteypu að ræða sem muni sliga útgerðina og verða litlum og meðalstórum útgerðum að fjörtjóni. En í hinu orðinu segja þeir að þetta sé svo lítið að þetta dugi ekki til að fylla upp í eina holu í malbikinu sem síðasta ríkisstjórn skildi eftir sig í innviðaskuldinni sem við höfum rætt hér. Þess vegna langar mig til að spyrja, af því að ég geri mér alveg grein fyrir því og hef komið inn á það í ræðu hér undir störfum þingsins að þeir fjármunir sem fást í ríkiskassann með þessu móti muni ekki leysa alla innviðaskuldina á einu bretti: Er það þá þannig í huga hv. þingmanns að eitt útiloki annað? Að leiðrétting veiðigjalda komi í veg fyrir að við förum aðrar leiðir, t.d. í sérstökum stórum vegaframkvæmdum þar sem verða t.d. innheimt veggjöld til að standa straum af framkvæmdinni?