veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Nú man ég ekki eftir því að orðið kollsteypa hafi komið fram í þessari umræðu. Hvað spurningu þingmannsins varðar um auðlindagjöld tel ég alveg sjálfsagt að auðlindagjöld séu greidd af auðlindum og ég man eftir því að einn af okkar ágætu þingmönnum á sínum tíma, Sigurður Páll Jónsson, flutti þingsályktunartillögu um að auðlindir yrðu skilgreindar, bæði þær sem eru í sjó, í jörðu niðri o.s.frv., og menn myndu þá taka heildstætt á því hvernig ber að borga afgjald eða eitthvað slíkt og skipuleggja fyrst og fremst. Persónulega er ég ekki á því að þetta mál muni ríða öllu á slig. Það mun það ekki gera. En það mun gera stöðu mjög margra byggða sem eru þegar í vandræðum enn þá verri.
Svo er eitt sem ég sagði hérna áðan. Ég tel verkefni stjórnvalda á hverjum tíma að sameina og ef núverandi stjórnvöld, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hefði borið gæfu til að undirbúa þetta mál vel, leggja það fram eftir að hafa hlustað á þá sem hafa hagsmuni af, þá er ég næstum því sannfærður um að það hefði verið hægt að ná breiðara samkomulagi, bæði í þessum sal og utan hans, um þetta mál. Ég held að það sé öllum ljóst og það sé allra vilji að það ríki sátt um þennan stóra atvinnuveg sem við eigum svo mikið undir en það verður ekki sátt um þann atvinnuveg eða einhverja aðra atvinnuvegi með svona (Forseti hringir.) vinnubrögðum. Það er annað mál.