156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:09]
Horfa

Árni Rúnar Þorvaldsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Þorsteini B Sæmundssyni fyrir hans svar við mínu andsvari. Mig langar að leggja út af orðum hans varðandi sátt hér í þessum sal. Ég geri ekkert lítið úr því að það er mikilvægt að ná sátt um utanumhald og skipulag sjávarútvegsmála í samfélaginu og í landinu. Þetta er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein og undirstöðuatvinnugrein fyrir landið og einstakar byggðir eins og við þekkjum og hefur margoft komið fram í umræðunni. En mig langar þá að spyrja hann út í þá hlið umræðunnar sem snýr að sátt við landsmenn því að það er, eins og hefur komið fram í umræðunni, mikill stuðningur meðal landsmanna við þetta frumvarp frá hæstv. ríkisstjórn. Hvernig sér hann fyrir sér að ná sátt við þann hluta landsmanna sem er ósáttur við kerfið í dag? Telur hann ekki einmitt að samþykkt þessa frumvarps gæti verið liður í því að ná sátt meðal landsmanna um sjávarútvegsmálin?