veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Rúnari Þorvaldssyni kærlega fyrir þessa spurningu vegna þess að ég held og sagði í andsvari áðan að við ættum að leita samvinnu og samkomulags, bæði hér inni og utan þessa þingsalar. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það er hægt að ná sátt meðal þjóðarinnar um þetta mál, t.d. bara með því að kynna það með almennilegum hætti, ekki tyggja hér upp einhverjar möntrur um leiðréttingu þegar um skattahækkun er að ræða — menn eru að tala um umframhagnað hér og þar. Hafa menn lesið ársreikninga verslunarfyrirtækjanna sem við verslum í á hverjum einasta degi? Það er ekki mikill áhugi á því. Þeir urðu þó að taka peninginn beint úr vösunum á okkur, ekki satt? Það er ekki í gegnum það að þeir séu að veiða fisk og við séum að borga þeim fyrir það eða hjálpa þeim til þess. Þeir sjúga bara peningana beint úr vösum okkar (Forseti hringir.) og það er enginn áhugi á að kíkja á það. En af því að hv. þingmaður nefndi lög um vegi og að við getum ekki gert þá fyrir þennan pening, það er alveg rétt. Við vorum t.d. (Forseti hringir.) að samþykkja frumvarp áðan um að selja Íslandsbanka sem kom í okkar hendur vegna baráttu sérstaklega eins manns, (Forseti hringir.) Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, og nú erum við að uppskera af því, getum selt hann. Það er örugglega hægt að teppaleggja nokkra vegi með þeim peningum.