156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:12]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Eins og rætt hefur verið mikið um í þessum sal hyggst ríkisstjórnin ná í gegn frumvarpi um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018, á þessu vorþingi. Í því ljósi hefur ríkisstjórnin nefnt ítrekað nauðsyn þess að arður af sameiginlegum auðlindum skili sér til þjóðarinnar. Það er því ágætt að staldra aðeins við. Við í Framsókn erum nefnilega algjörlega sammála því markmiði og höfum ætíð verið tilbúin til að ræða hvernig þjóðin geti fengið sanngjarnari hlut af sínum auðlindum. En það sem við þurfum raunverulega að ræða hér er ekki hvort þjóðin eigi að njóta arðs af auðlindunum. Þjóðin á alltaf að fá að njóta hámarksarðs af auðlindum sínum. Við eigum að ræða hvernig staðið er að skyndilegum og óvæntum breytingum á grundvallaratvinnuvegi eins og sjávarútvegi, breytingum sem hafa hugsanlega stórfelld áhrif á samfélög og fyrirtæki á landsbyggðinni. Það skiptir máli að skoða hvaða gögn liggja fyrir og hvaða gögn skortir um áhrif hækkunar á veiðigjöldunum. Við þurfum að ræða áhrifin á sveitarfélög, sérstaklega þau minni og viðkvæmu, og skilja hvernig slíkar breytingar geta haft áhrif á félagslegt umhverfi, efnahag og framtíðarþróun þeirra. Við biðjum ekki um annað.

Mig langar í þessu samhengi að vitna til skýrslu frá árinu 2012 um efnahagsumsvif Austurlands sem gerð var af Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Skýrslan sýnir svart á hvítu hversu gríðarleg verðmætasköpun á sér stað á Austurlandi þrátt fyrir að þar búi rétt tæp 3% þjóðarinnar. Austfirðingar skapa tæpan fjórðung af öllum vöruútflutningi landsins. Þar verða til yfir 20% útflutnings á sjávarafurðum og þar fara fram um 35% af álframleiðslu landsins. Þegar ferðaþjónustan er tekin með hækkar hlutfall Austurlands í heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar verulega. Af hverju er mikilvægt að ræða þetta? Jú, vegna þess að þessar tölur undirstrika hversu viðkvæm þessi verðmætasköpun er af því að það eru svo fáir sem standa að baki henni. Þetta fólk og þessi fyrirtæki vinna gríðarlega mikilvægt starf dag hvern en þau eru viðkvæm fyrir skyndilegum breytingum. Þegar ríkisstjórnin ákveður að hækka skattlagningu á sjávarútveginn með litlum fyrirvara og án fullnægjandi greininga getur það haft alvarleg og ófyrirsjáanleg áhrif á þessi samfélög, á þeirra félagslega öryggi, á velferðarmál og innviði. Hver getur óskað þess?

Svo er annað í þessu samhengi. Það er nefnilega áhyggjuefni hversu lítill hluti verðmætasköpunarinnar skilar sér aftur til þeirra svæða þar sem auðlindirnar eru nýttar. Opinber störf eru fá og innviðir víða langt á eftir þörfum. Þetta ósamræmi verður að leiðrétta. Því þurfum við skýra og samræmda auðlindastefnu sem tryggir réttláta dreifingu auðlindatekna milli atvinnugreina og sveitarfélaga.

Nýlegur dómur um gjaldtöku hafna vegna löndunar á eldisfiski sýnir vel hversu veikburða tekjuöflun sveitarfélaga getur verið. Dómur Landsréttar nr. 832/2023 fjallaði um lögmæti aflagjalds samkvæmt hafnalögum. Vesturbyggð krafði Arnarlax ehf. um greiðslu aflagjalds vegna löndunar á eldisfiski í höfnum sveitarfélagsins. Niðurstaðan varð sú að innheimta aflagjalds af eldisfiski hefði ekki næga lagaheimild þar sem eldisfiskur telst ekki til sjávarafla samkvæmt lögum. Dómurinn staðfestir veikleika sveitarfélaga við að afla nauðsynlegra tekna og sýnir nauðsyn þess að sveitarfélög hafi skýrar og traustar tekjuheimildir.

Virðulegi forseti. Við þurfum ítarlegar og vandaðar greiningar á áhrifum hækkunar veiðigjalda áður en slíkar ákvarðanir eru teknar. Slíkar greiningar þurfa að meta sérstaklega áhrifin á einstök sveitarfélög, minni fyrirtæki og félagslega þróun þeirra. Slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar til að tryggja að ákvörðunartaka okkar verði vönduð og sanngjörn. Undir þetta taka t.d. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga en í fundargerð þeirra kemur fram m.a., með leyfi forseta:

„Við teljum þessa tillögu bera vott um skort á skilningi á mikilvægi sjávarútvegs fyrir byggðafestu og stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Hækkun veiðigjalda að þessu marki getur ekki aðeins haft mikil áhrif á rekstrarforsendur fyrirtækja og samspil veiða og vinnslu, heldur einnig á fjölda samfélaga vítt og breitt um landið.

Samtökin skora á ríkisstjórnina að staldra við og hefja gagnsætt samtal við hagaðila um sanngjarna og rökstudda nálgun á grundvelli greininga á áhrifum á ekki eingöngu fyrirtæki heldur einnig sjávarútvegssveitarfélög. Í framhaldinu verði lögð fram endurskoðuð tillaga byggð á samtölum og greiningum.“

Virðulegi forseti. Ábendingar og athugasemdir sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarfélaga bera merki samtals- og samráðsleysis. Slíkt er alvarlegt. Ég er þess fullviss að með góðu samtali, samráði og samanburði á útreikningum væri hægt að komast að niðurstöðu með sveitarstjórnum um raunhæfari tímalínu og mögulega áfangaskiptingu verkefnisins. Það hefði verið betri bragur á því að leggja fram svona mikla hækkun í skrefum með vörðuðum mælikvörðum svo hægt væri að fylgjast með raunverulegum áhrifum breytinganna á samfélögin á landsbyggðinni, sérstaklega á sveitarfélögin. Í gær fengum við alþingismenn senda ályktun stjórnar Vestfjarðastofu um áhrif af hækkun veiðigjalds á Vestfirði. Þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Stjórn Vestfjarðastofu lýsir þungum áhyggjum af frumvarpi ríkisstjórnarinnar um hækkun á veiðigjaldi og væntanlegum áhrifum þess á atvinnulíf og samfélög á Vestfjörðum.

Miðað við þær forsendur sem liggja að baki breytingu á veiðigjaldi má telja ljóst að áhrifin verði mjög íþyngjandi og komi afar hart niður á litlum og meðalstórum bolfiskútgerðum. Á Vestfjörðum eru eingöngu litlar og meðalstórar útgerðir í bolfiskveiðum og vinnslu. Þrátt fyrir að frítekjumark hafi verið hækkað, þá verður sú hækkun étin upp að miklu leyti vegna aukins þunga í gjaldtöku á þorsk og ýsu í nýjustu breytingum frumvarpsins. Misræmi milli útreikninga ráðuneytis og SFS verður að skýra til þess að hægt sé að treysta útreikningum vegna áhrifa af frumvarpinu.

Miðað við greiningar Deloitte og fyrirtækjanna sjálfra á nýjustu ársreikningum vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja eru áformin óásættanleg með tilliti til mikillar skerðingar á samkeppnishæfni og framlegð þessara sjávarútvegsfyrirtækja. Slíkur skortur á samkeppnishæfni kemur niður á endurnýjun á tækjabúnaði og fjárfestingu í framþróun, nýsköpun og þjónustukaupum. Fram hafa komið áhyggjur forsvarsmanna minnstu eininganna um tilvistargrundvöll sinn ef breytingarnar ganga eftir sem ber að taka alvarlega. Afleiðingar skertrar samkeppnishæfni og minni fjárfestinga hafa bein áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaga og fjölmargar afleiddar þjónustugreinar sem skapa umsvif og tekjur.

Eftir miklar umræður undanfarnar vikur um hækkun veiðigjalda hefur ríkisstjórnin ekki svarað því hvernig staðinn verði vörður um samkeppnishæfni fyrirtækja og samfélaga á Vestfjörðum. Breytingum á frítekjumarki frá fyrstu drögum fylgja aðrar breytingar á útreikningum með tilheyrandi óvissu um endanlega niðurstöðu.

Aðrar íþyngjandi tillögur á samfélög á Vestfjörðum undanfarinna missera svo sem innviðagjald á skemmtiferðaskip, kolefnisgjald og hækkun á sérstökum laxaskatti í ofanálag leggst ofan á allt annað til þess að draga úr þeim viðnámsþrótti sem hefur einkennt síðustu ár á Vestfjörðum.

Stjórn Vestfjarðastofu skorar á stjórnvöld að bregðast hratt við og endurskoða enn frekar tillögu sína um hækkun á veiðigjaldi þannig að tekið verði tillit til réttmætra áhyggja atvinnulífs og sveitarfélaga á Vestfjörðum. Það er lágmarkskrafa að áhrifin af hærra veiðigjaldi á samfélög á Vestfjörðum verði könnuð með ítarlegri hætti áður en lengra er haldið.“

Virðulegi forseti. Þær ábendingar sveitarfélaga, landshlutasamtaka og fjölmargra annarra aðila um umsagnartímann ber að taka alvarlega. Höfum það á hreinu að í sumum sveitarfélögum er hreinlega bara einn sveitarstjórnarfundur á mánuði. Það á t.d. við um mitt heimasveitarfélag, Múlaþing. Í þeim umsögnum sem komu frá sveitarfélögum er ítrekað bent nákvæmlega á þennan punkt. Til að mynda kemur fram í umsögn frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga að, með leyfi forseta:

„Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga mótmælir því harðlega að veittur sé einungis tíu daga umsagnarfrestur um svo umfangsmiklar og afdrifaríkar breytingar á veiðigjöldum. Svo skammur frestur gerir sveitarfélögum ókleift að meta af fullri alvöru þær víðtæku efnahagslegu og samfélagslegu afleiðingar sem fyrirhugaðar breytingar kunna að hafa á atvinnulíf og í framhaldinu á rekstur sveitarfélaga. Þetta er ekki í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti né þau faglegu vinnubrögð sem ríkisstjórnin hefur boðað. Þá er þessi frestur jafnframt í andstöðu við samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa þar sem segir í 3. gr. að hæfilegur frestur skuli gefinn til athugasemda, og að hann skuli vera að minnsta kosti tvær til fjórar vikur.“

Byggðarráð Skagafjarðar fjallar einnig um þennan mikilvæga punkt í umsögn sinni og segir, með leyfi forseta:

„Byggðarráð Skagafjarðar telur að umsagnarfrestur um frumvarpsdrögin sé of skammur og leggur til að hann verði framlengdur um a.m.k. 4 vikur. Með lengri umsagnarfresti gefst byggðarráði tími til að vanda betur umsagnir sínar og meta með meira öryggi áhrif hækkaðs veiðigjalds á starfsemi sjávarútvegs í Skagafirði og fjárhag sveitarfélagsins.“

Í sama streng er tekið í umsögn bæjarráðs Akureyrarbær, en þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Við gerum athugasemd við hversu skammur tími er gefinn til athugasemda og umsagna um fyrirhugaðar breytingar. Mikilvægt er að horft verði sérstaklega til áhrifa frumvarpsins á sveitarfélög landsins og að sveitarstjórnarfólki sé veitt nægt svigrúm til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. “

Fjallabyggð segir í sinni umsögn m.a., með leyfi forseta:

„Fjallabyggð gerir verulegar athugasemdir við stuttan umsagnarfrest sem veittur var, eða aðeins 10 dagar frá birtingu frumvarpsins, sérstaklega í ljósi þess að engin greiningargögn eru lögð fram og eins og áður segir því mikil óvissa um áhrifin. Ómögulegt er fyrir sveitarfélög að afla sér nauðsynlegra upplýsinga með svo skömmum fyrirvara og því gerir Fjallabyggð þá kröfu að umsagnarfrestur verði framlengdur og aflað verði frekari gagna til upplýsinga og samtals við hagaðila með það í huga að minnka þá óvissu sem ríkir um afleiðingar slíks frumvarps fyrir sjávarútvegssveitarfélög.“

Að lokum vil ég taka undir og benda á álit hjá mínum nágrönnum og vinasveitarfélagi Fjarðabyggð, en þeir segja í sinni umsögn:

„Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að endurskoða áform sín þegar í stað og óskað er eftir því að ríkið leggi fram heildstæða greiningu á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á byggð, atvinnu og fjárfestingu í sjávarútvegi eins og 129. gr. sveitarstjórnarlaga kveður á um en þar skal leggja sérstakt mat á áhrif lagabreytinga á fjárhag sveitarfélaga. Þá krefst bæjarráð Fjarðabyggðar þess að frestur til umsagna við boðað frumvarp verði hið minnsta lengdur til að gera sveitarfélögunum kleift að senda inn umsagnir byggðar á gögnum sem afla þarf.“

Virðulegi forseti. Við þurfum enn fremur heildstæða auðlindastefnu áður en rokið er fram með skattbreytingar í sjávarútvegi. Heildstæð auðlindastefna verður að ná til ekki eingöngu sjávarútvegs heldur til annarra auðlinda líka, svo sem orkuvinnslu og ferðaþjónustu, til að tryggja samræmi og gegnsæi. Það þarf að samræma gjaldtöku og tryggja að auðlindatekjur renni að hluta til sveitarfélaganna þar sem þær verða til og að nærsamfélagið njóti arðsins. Við í Framsókn erum tilbúin til að vinna slíkri stefnu og tryggja að tekjur af auðlindum okkar dreifist sanngjarnt og réttlátt þannig að öll samfélög landsins, stór sem smá, fái notið þeirra verðmæta sem þau skapa.