veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jónínu Brynjólfsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Hún fer víða um í sinni ræðu og ræðir einmitt verðmætasköpun á Austurlandi og hversu illa hún skilar sér til baka. Þetta á reyndar almennt við um landsbyggðirnar. Það fara 2-3 kr. suður til Reykjavíkur en það skilar sér sirka 1 til baka. Þetta er svona efnið sem Þóroddur Bjarnason prófessor í félagsfræði skrifaði fyrir einhverjum árum, mjög áhugavert. Þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt og það sem og ég vitna bara í — ég hef ekki tíma til að fara í það núna — en í samráðsgáttinni er einmitt umsögn Múlaþings, þar sem hv. þingmaður er forseti sveitarstjórnar, varðandi verðmætasköpun og samkeppnishæfni svæða. Þetta áhrifamat í frumvarpinu er bara ekki til staðar. Það er lenska (Forseti hringir.) og við þekkjum þetta núna varðandi fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2026–2030: Allar greiningar og tölfræði virðast einhvern veginn vera fyrir bí í öllum þingskjölum á frumvörpum sem við fáum í þingsal.