156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:27]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Takk fyrir, forseti. Já, þetta er sláandi og svo ég fari betur yfir efnahagsumsvif Austurlands, sem er greining sem var unnin af Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi, þá er auðvitað gríðarlega mikil verðmætasköpun fyrir austan. Við erum með sjávarútveginn, þar er fjöldi fyrirtækja, við erum með fiskeldi og sjávarútveg. Samkvæmt þeirri greiningu sem var unnin árið 2022 af Analytica er talið að hlutur Austurlands sé 86,4 milljarðar af heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða ásamt fiskeldi frá Íslandi. Heildarútfluttar sjávarafurðir ásamt fiskeldi frá Íslandi eru taldar næstum því 400 milljarðar og Austurland á þarna 86,4 milljarða af því eða 21,7%, þannig að það er alveg ljóst að samkvæmt þessari greiningu er Austurland sannarlega að skila sínu. Við höfum náttúrlega reynt að benda á þetta fyrir austan og ástæður þess að það var farið í þessa greiningu voru einmitt að vekja máls á því og reyna að benda fólki hér inni á hinu háa Alþingi og hæstv. ráðherrum og ríkisstjórn á mikilvægi þess að farið verði í heildaruppbyggingu fyrir austan miðað við þá fjármuni sem nú þegar koma þaðan. Það skortir gríðarlega á vegaframkvæmdir. Okkur vantar jarðgöng og það er gríðarlega margt sem þarf orðið að sinna fyrir austan og það eru þungatakmarkanir út úr landshlutanum í báðar áttir á brúm.