156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:29]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Jónína Brynjólfsdóttir kom inn á í sinni ræðu hér áðan og vitnaði í yfirlýsingu Vestfjarðastofu sem kom á fjölmiðla í gær og var send til okkar. Hún er svolítið efnislega innihaldið í þessari umræðu sem er búin að vera hérna í dag og á þriðjudaginn síðastliðinn. Ég vek athygli hv. þingmanna á því að kynna sér hana vel vegna þess að hún er vel orðuð og tæklar raunverulega bara nokkuð vel það sem við erum að fást við hér.

Lykilatriðið er að hér er raunverulega verið að draga úr viðnámsþrótti þeirra sveitarfélaga, sjávarútvegssveitarfélaga sérstaklega, sem eru náttúrlega utan Hvítár-Hvítár svæðisins. Það eru afleiðingar þessa máls og hvaða áhrif það mun hafa á styrk þeirra í framtíðinni, á skattspor og möguleika til að þróast áfram inn í framtíðina. Þess vegna er þetta svo alvarlegt mál og auðvitað er ekkert skrýtið að það sé mikið fylgi við það í skoðanakönnunum, eins og spurningarnar um það eru orðaðar. En það er kannski ekki endilega þekking á bak við málið. Það er auðvelt að segja við einhvern: Heyrðu, við tökum bara meira af þér heldur en mér og ég er bara sáttur.