156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:32]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langaði til að fá að stikla aðeins af því að ég upplifði það þegar hún hélt hér ræðuna að hún vildi ná sátt um greinina. Það er svolítið það sem ég upplifi eiginlega alls staðar, fólk vill ná sátt um þessa mikilvægu grein. Að sama skapi tel ég mikilvægt að út af því að við viljum ná sátt þurfum við að vanda vel til verka og það megi ekki verða til þess að hér verði gengið yfir ákveðnar byggðir landsins. Það kom fram í máli stjórnarþingmanns áðan, ef ég reyni að fara hér alveg rétt með: Svo bíðum við bara og sjáum til hvort þetta blessist ekki bara vel.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann: Er þetta ekki kjarni málsins? Það á bara að vaða áfram og sjá svo til.