156. löggjafarþing — 38. fundur, 8. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Forseti. Ég þakka fyrir svarið. Mig langaði í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann út í það sem er alltaf tengt saman við þetta frumvarp. Það er samgöngu- eða innviðauppbygging. Nú liggur það fyrir að ekkert var sett af stað eftir því hvað kemur mikið út úr þessu frumvarpi enda er Alþingi með fjárlagavaldið hérna. Mig langar því að spyrja: Hafið þið fyrir austan heyrt eitthvað af því hvaða innviðir verði byggðir upp hjá ykkur?