156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:35]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir afar góða spurningu. Svarið er að sjálfsögðu nei. Það var svo sem ekki kynnt og það liggur ekki fyrir í hvaða innviðauppbyggingu á að fara næst. Við erum með framkvæmdir og það hafa verið framkvæmdir á samgönguáætlun sem hafa frestast, ekki bara árum heldur áratugum saman. Ég held að Öxi eigi mögulega einhvers konar met í því að hanga inni á samgönguáætlun og detta út af henni aftur. Það er sorgleg saga. Ég hef ekki lagt í að kynna mér hana af því að hún er grátleg. Hins vegar tel ég að þetta sé kannski ekki beint eins mikill sölupunktur og stjórnarmeirihlutinn heldur að þetta sé. Þegar við komum þungaflutningum eiginlega ekki frá Austurlandi eða til Austurlands af því að það eru þungatakmarkanir á Jökulsá á Fjöllum og um Suðurfjarðaveg er ekkert rosalega sannfærandi að segja að ef við ætlum að taka aðeins meiri fjármuni þá gerist það. Ég ætla að minna aftur á hérna: 86,4 milljarðar af útfluttum sjávarafurðum ásamt fiskeldi á Austurlandi. (Forseti hringir.) 86,4 milljarðar.