156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:38]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Jú, af hverju liggur einmitt svona á? Þetta er þeim mikið hjartans mál og við sjáum það náttúrlega að mikill hluti þjóðarinnar styður það svo sem að við tökum meira frá sjávarútveginum. Það má velta því fyrir sér af hverju það er. Það er mögulega bara vegna einhverrar ímyndar sem á sjávarútveginn hefur komið, sem er að mörgu leyti bara ósanngjörn. Ég held að menn séu að flýta sér svona mikið af því að þá vanti fjármuni hratt. Það er alltaf þetta, svo ég sletti, með leyfi forseta, „low hanging fruit“ — þeir ávextir sem lafa neðst á trénu. Það er verið að grípa svona neðstu eplin, sitjandi endur á tjörnum, ef svo má segja, einhverjar leiðir til að nálgast einhverja fjármuni. Þá vil ég benda á, af því að hann kom ágætlega inn á það hér áðan, hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson — mig langar svolítið að taka undir það að ef það vantar fjármuni til ríkisins þá velti ég því fyrir mér hvort það væri þá ekki skynsamlegra að hækka bara skatta á fyrirtæki af því að við sem búum á landsbyggðinni erum að reyna að reka okkar fyrirtæki eftir bestu getu. Þar eru starfræktar verslanir. Við erum með Nettó og Bónus og Krónuna og við erum með N1 og þessi fyrirtæki öll reka sig um allt land. Þeirra hagnaður skilar sér til Reykjavíkur, hann fer ekki til baka. Auðvitað mætti spyrja sig að því: Bíddu, á þá bara hagnaður af fyrirtækjum af landsbyggðinni að fara suður? Hvað með hagnað af fyrirtækjum sem reka sig á landsbyggðinni en eru fyrir sunnan? Eiga þau ekki líka að skila í ríkiskassann? Mér finnst það bara sjálfsögð og eðlileg spurning (Forseti hringir.) að spyrja að því. Það ætti kannski frekar að gera það.