156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:40]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég ætla að lýsa mig sammála, a.m.k. stórum hluta af því sem hún nefndi. Ég hlustaði hér í gær á ræðu eins þingmanns í stjórnarliðinu þar sem viðkomandi hafði á orði að við ættum ekki að hafa áhyggjur af því sem hefði nú þegar gerst varðandi uppstokkun á veiðiheimildum en við ættum hins vegar að hafa áhyggjur af því sem fram undan væri. Ég velti fyrir mér hvort það sé þá sýn stjórnarmanna eða stjórnarliða hér að núverandi frumvarp muni hafa þær afleiðingar í för með sér að það verði frekari samþjöppun á veiðiheimildum og vinnslu. Það sé þá raunverulega tilgangur þess að setja þetta fram hér.