veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Þetta er nefnilega afar góður punktur og mig langar aðeins að fabúlera með þetta af því að hann talaði áðan um neikvæða ímynd. Auðvitað er hluti af neikvæðri ímynd sjávarútvegsins sú samþjöppun sem nú þegar hefur átt sér stað. Það er auðvitað — fyrir þau samfélög sem hafa misst sjávarútveginn og þau vita hvað þau hafa misst. Þessi samfélög vita nákvæmlega hvað þau hafa misst. Þess vegna eru þau sár, þau eru reið. En hvað ætlum við að gera ef fleiri samfélög fara að missa? Hvað ætlum við að gera? Segjum sem svo að Síldarvinnslan bara hætti og flytji starfsemi sína norður. Það verður bara farið með alla vinnslu norður á Dalvík eða norður. Hvað ætla menn að segja þá? Ég er ekkert alveg viss um að það muni glotta í þeim samfélögum sem hafa misst sjávarútveg, að fleiri missi sjávarútveginn. Ég er ekki viss um að það væri eitthvað gott markmið að reyna að ná því fram í einhvers konar hefnigirni þannig að ég bara hvet til málefnalegrar umræðu um þau samfélög (Forseti hringir.) sem eru háð sjávarútvegi enn þá.