veiðigjald.
Herra forseti. Ég ætla í andsvari kannski aðeins að koma inn á — við höfum heyrt umsagnir sveitarfélaganna hér í ræðustól í nokkra daga. Þær eru að langmestu leyti, ja — gjalda mikinn varhug við þessu frumvarpi, áhrifin séu óljós á hag sveitarfélaganna og fyrirtækjanna og samfélaganna, aðallega úti á landi. Hv. þingmaður kom inn á það í sinni ræðu og vitnaði í nokkur sveitarfélög en stjórnarþingmenn aftur sem hafa komið hér í ræðu hafa verið að tala um að þeir hafi nú 90% þjóðarinnar á bak við sig og þjóðin vilji þetta o.s.frv. Hefur hv. þingmaður einhverja skýringu á þessum mismun? Af hverju eru sveitarfélögin með svona miklar áhyggjur af þessu og virðast gjalda mikinn varhug við þessu þegar stjórnarþingmenn telja að öll þjóðin, langmestur hluti þjóðarinnar, vilji endilega hækka þessi veiðigjöld? Hefur hún einhverja skýringu á þessum mismun? Er þetta kannski einhver munur á landsbyggð og höfuðborg eða í hverju liggur þessi skýring?