156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:44]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir afar góða spurningu af því að þarna slær hjarta mitt — í byggðamálunum. Kannski er ástæða þess að stór hluti þjóðarinnar er hlynntur þessu sá að stór hluti þjóðarinnar býr á Hvítár-Hvítársvæðinu. Hann býr ekki á því svæði þar sem sjávarútvegur hefur raunverulega mestu áhrifin. Sjávarútvegurinn og þetta frumvarp hefur að sjálfsögðu mest áhrif á þá bæi sem eru háðir sjávarútvegi og hafa sjávarútveg, mögulega, sem aðalatvinnugrein. Þetta tel ég vera algera ástæðu þess að þau sveitarfélög sem eru utan þess svæðis sem skilgreint er á milli Hvítánna séu svona afdráttarlaus í sínu svari. Ég reyndar tel að ef sveitarfélögunum væri bara gefið meira svigrúm, þá væru þau tilbúin til samtals. Þau lýsa sig öll tilbúin til samtals og samráðs. Þau eru öll að óska eftir því. Ég skil ekki af hverju ekki er hægt að sýna þeim þá virðingu að leyfa þeim að meta og greina hvernig staðan er og hvað þau telja. Af því við getum ekki öll reiknað okkur niður á sama Excel-skjalið, það getur vel verið. En við verðum alla vega að vera svona sirka sammála um hvernig afleiðingarnar verða.