156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:45]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta eru athyglisverðar hugmyndir um þetta atriði. Það er auðvitað óskiljanlegt að núverandi ríkisstjórn hlaupi núna strax eftir nokkurra mánaða setu og fari í það að ýta undir þessa gliðnun á milli landsbyggðar og höfuðborgar, það er auðvitað bara óskiljanlegt, í trausti einhverra skoðanakannana sem sýna fram á það að 90% þjóðarinnar vilji hækka veiðigjöld. Ég hugsa að það sé bara alveg hárrétt og ég held að það séu bara mjög margir tilbúnir til þess að þjóðin fái arð af öllum sínum auðlindum. Auðvitað erum við, held ég, sammála um það langflest. En hvernig það er gert. Það er vaðið svona áfram án þess að huga að því hver áhrifin eru. Ef ég ætla að móta spurningu í framhaldinu þá myndi ég kannski vilja fá álit hv. þingmanns á því: Hvernig telur hún að við getum fengið sem mestan arð af auðlindinni — með því að hækka veiðigjöldin eða með einhverju öðru móti?