156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:46]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég tel að einhvers staðar í keðjunni séum við alveg örugglega aflögufær í sjávarútvegi. Það er alveg ljóst, en hvar það er, hvort það sé bara í hagnaði fyrirtækja — ég held að jafnvel væri skynsamlegra að leggjast á það þannig heldur en að setja þetta á veiðigjöldin. Íslenskur sjávarútvegur er sko lúxusvara. Þetta er lúxusvara sem við erum að framleiða og afleiddu störfin og afleiddu vörurnar og vöruþróunin og nýsköpunin sem hefur átt sér stað er bara einsdæmi á heimsvísu. Við verðum að tryggja að svo verði áfram. Þannig að já, það getur vel verið að sjávarútvegurinn sé eitthvað aflögufær með eitthvað í viðbót en við verðum samt að tryggja það að nýsköpunin geti haldið áfram því í nýsköpuninni er næsta og mesta tekjuöflunin. Við vitum bara ekki hvaðan þær tekjur koma eftir tíu ár af því að það er ekki búið að finna það upp, eða það er verið að vinna að því núna. Það erum við búin að sjá hér, að stór fyrirtæki verða til á hugmyndinni einni saman og mikil úrvinnsla og mikil vinnsla á aukaafurðum.