veiðigjald.
Herra forseti. Við ræðum hér að mér telst til á þriðja degi frumvarp um breytingar á veiðigjaldi. Þetta hefur verið um margt fræðandi umræða. Þó að ég sé kannski ekki endilega sáttur, herra forseti, við frumvarpið eins og það lítur út þá ætla ég engu að síður að þakka fyrir þá umræðu sem hefur verið hér. Ég vil sérstaklega þakka stjórnarliðum sem hafa mætt hér til samtals við stjórnarandstöðuna og ekkert dregið af í þeim efnum og mæta hér í andsvör og svara. Það skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli varðandi framvindu málsins að við skiljum alla vega vel hvað það er sem við erum að ræða nákvæmlega. Ég vil segja eftir að hafa háð harða kosningabaráttu í nóvember — herra forseti, er klukkan eitthvað galin? (Forseti (IngÞ): Forseti biðst velvirðingar.) (Gripið fram í.)Eru nokkuð þungatakmarkanir hér í púltinu? [Hlátur í þingsal.] (Forseti (IngÞ): Ekki svo forseti viti.) Ég bið alla vega forseta að segja ekki Diljá Mist Einarsdóttur frá því. [Hlátur í þingsal.]
Herra forseti. Já, ég nefndi kosningabaráttuna. Ég er 1. þm. Norðvest. og allir flokkar voru mjög duglegir við að heimsækja kjördæmið. Þetta er víðfeðmt og erfitt kjördæmi að ferðast um og ég vil meina að við frambjóðendur höfum staðið okkur nokkuð vel í að heimsækja fyrirtæki, íbúa og stofnanir. Það var áberandi í Norðvesturkjördæmi að þar er mjög mikið af útgerðum og vinnslum og þar er, vil ég leyfa mér að segja, engin stórútgerð, ef maður myndi orða það kannski með þeim hætti, ekki alla vega þær allra stærstu. Ég vil segja að hjá mjög mörgum af þessum útgerðum og vinnslum var hreinlega ágætisgangur í vinnunni og maður heyrði ekki annað á fyrirsvarsmönnum fyrirtækjanna en að það hefði margt brugðið til betri vonar en áður. Vil ég þar sérstaklega nefna varðandi t.d. vinnslurnar að það var ánægjulegt að menn voru farnir að horfa til þess að nýta vinnslugetuna til að vinna með nýja gullið á Vestfjörðum sem er lax. Og almennt var jákvætt hljóð í fólki. Þegar maður fór síðan að spyrja eftir því hvaða áherslumál væru til grundvallar hjá þessum aðilum þá vil ég leyfa mér að segja að flestir nefndu að það gætu orðið stjórnarskipti og það væri ekkert ólíklegt að það kæmu aðrir til valda. Þá höfðu menn raunverulegar áhyggjur af því hvort það yrðu gerðar einhverjar breytingar á fiskveiðum. Þar sem maður fór á eftir núverandi stjórnarflokkum var ekki að heyra að menn hefðu einhverjar auknar áhyggjur eftir að hafa hlustað á þá frambjóðendur. Ég vil meina að þeir frambjóðendur hafi boðað í rauninni nákvæmlega sama boðskap og við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem var í rauninni að búa þannig um hnútana að það væri aukinn fyrirsjáanleiki fyrir fyrirtækin og stuðlað að því að það væri aukin verðmætasköpun, hvort heldur er með einföldun regluverks eða lækkuðum álögum.
Niðurstaðan hefur reynst reyndar aðeins önnur. Um leið og frumvarpið sem nú er undir eða forveri þess birtist í samráðsgátt þá renndi ég nú í gegnum stjórnarsáttmálann. Ríkisstjórnin boðaði að hún hefði ætlað að ganga samstiga til verka til að ná stöðugleika í íslensku efnahagslífi og stuðla að aukinni verðmætasköpun. Þetta væri gert með því að vinna að fjölbreytni í atvinnulífi og hagstæðum rekstrarskilyrðum fyrirtækja. Stutt verði við vöxt í nýsköpun og tækni sem og að ýta undir verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og treysta stoðir hinna dreifðu byggða. Ég ítreka: Treysta stoðir hinna dreifðu byggða.
Ég vil leyfa mér að segja, herra forseti, að það sem blasti við okkur í samráðsgáttinni 25. mars, ef ég man rétt, var ekkert í líkingu við þetta. Eins og ég nefndi áðan eru í Norðvest. eiginlega nær eingöngu litlar og meðalstórar útgerðir og vinnslur sem einmitt eru líklegastar til þess að þurfa að bera verulega auknar álögur samkvæmt frumvarpinu og þó kannski sérstaklega því sem var í samráðsgáttinni. Ég ætla ekki að halda því fram að núverandi tillögur séu jafn slæmar og þær voru fyrir og það hefur m.a. birst viðtal við einn sveitarstjóra, Kristinn Jónasson í Snæfellsbæ, þar sem hann lýsti yfir því áliti sínu að frumvarpið hafi lagast að einhverju leyti. Hann hefur hins vegar ekki gefið út það heilbrigðisvottorð sem Viðreisn er að dreifa á samfélagsmiðlum, að hann hafi hoppað hæð sína af kæti. Það er bara ekki rétt. Ég þekki þá alla vega ekki Kristin Jónasson.
Ég hef verið svolítið hugsi yfir því sem sett var í samráðsgáttina. Nú held ég að Viðreisn hafi verið það ljóst að það yrðu gerðar athugasemdir við að þau myndu í rauninni rjúfa eigin heit um það að láta samráðsgáttina lifa alla vega tvær til fjórar vikur, eins og hefur komið fram að er m.a. í ríkisstjórnarsamþykkt. Ég er allur í samsæriskenningum hvað þetta varðar og hef velt því fyrir mér hvort Viðreisn sé virkilega svona skrambi klár, að þau láti okkur vera að rífast alltaf um umbúðirnar en ekki efnið þannig að fókusinn væri á að skamma Viðreisn fyrir umbúðirnar en fara minna í efni frumvarpsins. En það eru nú svo sem vangaveltur.
Í samráðsgáttina var skilað ef ég man rétt 11 umsögnum frá sveitarfélögunum í Norðvesturkjördæmi og öll voru þau svo sem á einn og sama veginn. Það var kvartað undan skömmum tíma og síðan var það nefnt að það væri augljóslega um verulega íþyngjandi álögur að ræða og skal nú engan undra þegar farið er yfir útsvarsgrunn nokkurra þeirra sveitarfélaga sem eru í Norðvest. Ég ætla að leyfa mér að tala fyrst og fremst um Norðvest., það er mikið búið að ræða hér önnur kjördæmi en ég vil halda mig við Norðvest. Þar kom í ljós að mjög stór hluti sveitarfélaganna er verulega háður útgerð og fiskvinnslu og dæmi um að sveitarfélög séu með yfir 50% af sínum útsvarsgrunni tengd við nákvæmlega þessa þjónustu. Þá er ekki verið að ræða tengda þjónustu eða afleidd störf.
Það voru ekki bara sveitarfélög sem sendu inn í samráðsgátt, það voru líka þeir aðilar sem þjónusta útgerð og fiskvinnslu. Vil ég þar nefna vélsmiðjur og aðra þjónustuaðila og síðan auðvitað tæknifyrirtæki. Ég vil bara leyfa mér að segja það að íslenskur sjávarútvegur og sú tækniþróun sem þar hefur orðið samhliða þróun í tækniiðnaði hefur verið eitt af þeim fjöreggjum sem við eigum að halda sem mest utan um og monta okkur af og reyna að gera þetta í fleiri greinum en sjávarútvegi. En það er fyrirsjáanlegt, að ég tel, miðað við gamla frumvarpið, að það hefði orðið um verulega minnkað fjármagn að ræða til þessara hluta hjá útgerðum og vinnslum.
Mig langar aðeins að nefna hérna — þó að margt af því hafi verið leiðrétt eða bara hreinlega dregið til baka eða bent á að væri rangt og við höfum auðvitað rætt þetta með Skattinn, það er í sjálfu sér alveg skýrt — en ég hef átt erfitt með að samræma það að það að hækka veiðigjaldið muni ekki hafa áhrif á hagnað fyrirtækja. Ég sé ekki alveg hvernig menn reikna sér það til, átta mig hreinlega ekki á því hvernig menn ná að komast í plús þar.
Þá vil ég einnig nefna að í frumvarpinu — fyrir ferkantaða lyfjafræðinga er mjög erfitt að hafa eitthvað sem heitir frítekjumark. Það er bara algert orðskrípi og á ekkert heima þarna. Ég skil hreinlega ekki af hverju það er þarna inni því það táknar í raun allt annað en verið er að ræða. Við erum í rauninni bara að ræða afslátt og ferkantaði lyfjafræðingurinn mun ekki ræða það frekar.
Nú hafa verið gerðar, eins og ég nefndi, ákveðnar breytingar á frumvarpinu. Það hefur verið bætt verulega í varðandi afslætti. Ég ætla bara að segja að það er vel. Það er þá einhver útgangspunktur til að vinna með. Ég sé að einhverjir aðilar eru greinilega búnir að ræða og það hefur m.a. verið rætt hér af fleiri þingmönnum — það er þessi ályktun stjórnar Vestfjarðastofu um áhrifin og svo auðvitað rödd Kristins Jónassonar en hér verður ekki annað séð en að menn telji að það sé ekki nóg að gert varðandi afsláttinn. Kannski þarf þá að hugsa það mál eitthvað betur eða mögulega leggja meiri vigt í það.
Ég er eiginlega alveg steinhissa yfir þessari gúrku sem á að vera varðandi það að nýta hækkun á auðlindagjöldunum í vegaframkvæmdir eða innviðauppbyggingu á þeim svæðum þar sem þau verða innheimt. Ég sé það ekki ganga upp og ég tel eiginlega nánast öruggt að það verði ekki staðið við neitt af því. Þegar maður horfir svo á hlutfall veiðigjalda í þjóðartekjum, sem ef ég man rétt er 0,5 eða 0,6%, þá er það ekki neitt neitt og verður aldrei til þess að það náist einhver sérstakur árangur í því að vinna með innviði. Ég ætla bara að leyfa mér að segja það. Þetta eru allt of litlir fjármunir og við eigum ekki að vera í einhverjum svona bútasaum að henda einhverjum gjöfum sem í rauninni nýtast ekki neitt. Ef við ætlum að gera þetta af einhverjum krafti þá erum við að tala um milljarðatugi og þeir verða að koma annars staðar frá en frá veiðigjöldum. — Ég sé, herra forseti, að ég er langt kominn með tíma minn hérna þannig að ég ætla að óska eftir því að forseti setji mig aftur á mælendaskrá og þá klára ég mína ræðu.