156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:05]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Ég hef séð hluta af þessari vinnu frá Deloitte. Þar var reyndar miðað við eldra frumvarp sem fór í samráðsgáttina og þar var í raun bara verið að setja inn ársreikninga fyrirtækjanna, þessar tölur. Það var í rauninni bara verið að reikna þetta út upp á nýtt og hvað það þýðir fyrir rekstur viðkomandi fyrirtækis. Ég geri ráð fyrir að þessi vinna sé í gangi og væntanleg með nýjar tölur og ég hef alveg trú á því að fyrir einhver fyrirtæki gæti það verið ásættanlegt en það á svo sem alveg eftir að sjá hvernig það fer. Væntanlega yrðu það minnstu fyrirtækin sem njóta mests ávinnings af þessu.