veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir gott svar. Mig langaði að halda áfram á þeirri braut af því að þessi umræða er búin að vera hér í salnum í smástund. Í umræðunni eftir mína ræðu var fjallað um þessa neikvæðu ímynd sem skapast hefur mögulega á sjávarútveginn og ég var að fjalla um hvernig þetta hefur verið á Austurlandi. Þannig að mig langaði kannski aðeins að biðja hv. þingmann um að spegla hvernig þetta hefur verið fyrir vestan og hvernig í raun og veru væri kannski hægt að snúa þessari ímynd við; hvort hann telji að þessar breytingar verði til þess að skapa þá sátt og fá fram þá jákvæðu ímynd sem við myndum vilja sjá á sjávarútveginum. Eru þetta sannarlega þær breytingar sem muni leiða til þess að þjóðin mun ekki lengur horfa á Verbúðina með einhverjum angistaraugum heldur geta sagt í sátt að það sé einhver sátt við sjávarútveginn? Ef það verður frekari samþjöppun, er það þá kannski sáttin sem leitast er eftir?