veiðigjald.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans síðara andsvar. Ég er einmitt á sömu bylgjulengd varðandi þennan þankagang. Ég held að í grunninn verði fólk að upplifa að það sé að fá eitthvert sanngirnisafgjald af auðlindinni og í rauninni erum við búin að ákveða það. Svo er það alltaf þetta: Hvað er sanngjarnt og hvað er réttlátt og hvað felst í því? Ég er alveg handviss um að hér inni verða jafn mörg svör og hér eru margir varðandi þann þátt. Ég held að það gæti verið kostur. Grundvallaratriðið er að greinin tali við yfirvöld og það hlýtur að geta verið gott markmið að þessir aðilar sameinist um það að horfa til þess að stækka kökuna, auka arðsemi í sjávarútvegi og skila þá meiru til þjóðarbúsins. Ég held að það (Forseti hringir.) ætti frekar að vera sameiginlegt verkefni heldur en að elta einhverjar krónur.