veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Ég las einmitt þetta innlegg frá Lýsi og ég er sammála því að það er ekki endilega hvati til þess að skila öðru en því verðmætasta úr fiskinum. En auðvitað er það sú sérstaða sem við höfum hér að hafa einmitt náð að byggja upp vinnslurnar. Ef þið segið ekki stjórnarliðum frá því má kannski nefna að maður getur alveg velt fyrir sér, fyrst við erum að nota Verðlagsstofuverðin, hvort það sé í raun verið að niðurgreiða fiskvinnslur á Íslandi í dag miðað við — ef maður hlustar á það sem stjórnarliðar eru að segja. Við höfum náð að byggja upp, að ég tel, einn öflugasta sjávarútveg í heimi og við höfum staðið uppi í hárinu á öllum okkar keppinautum þrátt fyrir að þeir séu mun stærri, margir hverjir, en við. Og við höfum náð að nýta afurðirnar. Það er til hreinnar fyrirmyndar, að mínu mati.