156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:12]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum seinna andsvar. Ég er sammála hv. þingmanni. Sú staða er uppi að það hefur myndast, segjum kannski ekki kúltúr en við skulum orða það þannig að það sé hefð á Íslandi að menn reyni að hagræða hjá sér með eins miklum hætti og kostur er og það er yfirleitt gert með því að nýta tæknina. Ég ætla samt að segja að auðvitað er það þannig að varðandi tækni og nýsköpun í sjávarútvegi þá getur hún átt við matvælaframleiðslu almennt. Maður hefur t.d. bara séð það á þeim fyrirtækjum sem sest hafa að á Akranesi hvað það skiptir gríðarlega miklu máli að hafa vinveitta útgerð á sama tíma og verið er að vinna að tæknilausnum. Það gagnast fyrir báða aðila. En við höfum auðvitað séð mjög verðmæt fyrirtæki á Íslandi einmitt koma upp úr sjávarútvegi. Ég held að Kerecis, sem er nú í Norðvesturkjördæmi, sé líka eitt skýrasta dæmið um hvernig tækni og nýsköpun geta farið saman með sjávarútvegi.