veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það var svo sem ánægjulegt að heyra að hv. þingmaður, svona snemma á sínum þingferli, viðurkennir að hann hneigist til samsæriskenninga. Þá get ég sagt allt um það að hann er á réttum stað hér í þessum sal því að allt of margir eru það einmitt og telja að jafnvel eðlilegasta umræða hér í þingsal sé hluti af einhverju samsæri en ekki þáttur í málefnalegri umræðu, sem við auðvitað viljum viðhafa hér og þetta mál er þannig vaxið að það kallar á töluverða umræðu og alls kyns spurningar. Mig langar að spyrja hv. þingmann sem kemur úr Norðvesturkjördæmi hvort hann geti upplýst mig um það hvort fólkið í kjördæminu hafi almennt einhverjar væntingar til þess að einhver innviðauppbygging muni leiða af þessari hækkun auðlindagjalda. Hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta og því hefur verið teflt fram hérna í umræðunni í málinu, svona með einhverjum vaxandi þunga, að þetta mál sé sprottið af skorti á vegalagningu úti á landi.