156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:15]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að það sé auðvitað þannig að í rökræðum almennt tíni menn til eiginlega alla þá kosti sem menn finna og þetta er auðvitað ágætisdúsa hvað það varðar. Ég heyri ekki að það séu einhverjar sérstakar væntingar til ríkisstjórna almennt að þær nýti þá fjármuni sem teknir eru af landsbyggðinni endilega úti á landi. Ég ætla að leyfa mér að segja að það sé frekar tortryggni hvað það varðar og ég myndi raunar halda að ef heimamenn fengju kost á því þá myndu þeir frekar horfa til þess að reyna að gera þetta sjálfir, ef það væri nokkur möguleiki. Það má m.a. nefna það hér að framámenn á Vestfjörðum ákváðu að stofna sérstakt innviðafélag hjá sér og það varðar vegalagningu frá Vestfjörðum til Reykjavíkur.