156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það var ágætt hjá hv. þingmanni að rifja það upp og minna á frábært framtak heimamanna hvað varðar innviðauppbyggingu. Ég skil því hv. þingmann þannig að ekki sé ákall a.m.k. í hans kjördæmi um að tvöfalda auðlindagjöld, tvöfalda skatta á fyrirtæki sem þarna eru í þeim tilgangi einmitt að leggja vegi. Ég hjó eftir því í dag að Vestfjarðastofa, í kjördæmi hv. þingmanns, bendir á að það vanti verulega upp á greiningarnar. Hv. þingmaður ræddi einmitt frítekjumarkið og Vestfjarðastofa bendir á að á móti frítekjumarkinu hafi auðlindagjaldið verið hækkað á þorsk og ýsu, á bolfiskinn sem einmitt heyrir svo mikið undir kjördæmi hv. þingmanns. En hvaða væntingar hafa menn almennt til sjávarútvegs í kjördæmi hv. þingmanns? Eru menn bjartsýnir almennt og þá er ég að meina til framtíðar? (Forseti hringir.) Mér finnst skorta á umræðu í þessum þingsal hvaða væntingar menn hafi til sjávarútvegs almennt til framtíðar, næstu 10–20 árin.