156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:18]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir gott seinna andsvar. Ég held að aðilar hafi væntingar um að það sé hægt að reka minni útgerðir á þessum stöðum. Það er auðvitað nálægð við gjöful fiskimið þannig að ég held að það sé, kannski ekki stemning en ég vildi allavega nefna að það er ágætiskrafa um fjölbreyttari útgerðarform. Þar hafa menn rætt allt frá strandveiðibátum upp í stór úthafsskip. Ég alla vega upplifði það í mínum samskiptum, þetta er auðvitað aðeins misjafnt í kjördæminu og ég ætla alveg að kannast við það. Ég kem kannski inn á það í minni seinni ræðu að það er auðvitað sérstakt ástand uppi á Akranesi, samfélagi sem er með í sínu DNA að veiða og verka fisk. Við erum ekki búin að jafna okkur á því sem þar gerðist og ég heyri t.d. að það er frekar mikil neikvæðni (Forseti hringir.) gagnvart útgerðinni eins og staðan er núna.