156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:19]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hjó eftir því að hann sagðist vera ferkantaður lyfjafræðingur eða lyfsali og skildi ekki hluti eins og frítekjumark. Mig langaði þess vegna aðeins að velta einmitt þeim þætti upp. Hér hafa stjórnarliðar farið mikinn í því að segja að þetta sé allt í góðu lagi því að 70% af kostnaðinum af auðlindarentu sem allir eiga þá að geta greitt — þeir gera lítið úr því, þetta sé bara svona hluti af því að fá aðgengið. Staðreyndin er hins vegar sú að af 900 útgerðum í landinu eru kannski bara þessar sjö, átta sem geta greitt þetta gjald. Það er held ég ástæðan fyrir frítekjumarkinu. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Ef þetta er auðlindarenta sem ekki á að hafa nein áhrif á reksturinn eins og stjórnarliðar halda fram, ætti þá ekki auðlindarentan að vera í samræmi við það og þessar 900 útgerðir ættu allar að geta greitt það gjald, auðvitað hlutfallslega eftir stærð?