156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:22]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef við hugsum þetta aðeins lengra, af því að ég veit að hv. þingmaður hefur rekið lyfjasölur, ef það væri litið á það sem auðlindarentu að geta sett niður lyfjasölur og þær væru takmarkaðar að einhverju leyti, og til þess að fá leyfi fyrir þeim myndu menn þurfa að greiða gjald fyrir aðgengi, þá myndi það væntanlega vera mismunandi eftir því hversu mikill fólksfjöldi væri á bak við hvert þjónustusvæði. Þar með væri komið eitthvert frítekjumark, væntanlega til að bjarga þeim sem eru að reka lyfjasölur á litlum stöðum. Þetta ætti þá að ganga yfir allar atvinnugreinar ef þetta væri svona, tannlæknar, lögfræðistofur, iðnaðarmenn. Auðvitað er þetta skattur og ekkert annað. Mig langar aðeins bara í lokin að spyrja hv. þingmann hvort það væri ekki miklu hreinlegra og gáfulegra að þar sem um 70% eiga að vera greidd af stærstu fyrirtækjunum sem augljóslega eru að hagnast mest: Er ekki miklu eðlilegra að það sé í raun og veru bara þrepaskiptur tekjuskattur (Forseti hringir.) og fyrirtæki sem sannarlega hagnast verulega, hvort sem er í sjávarútvegi eða einhverjum öðrum rekstri, greiði þá hærra til samfélagsins í gegnum það?