veiðigjald.
Forseti. Yfirlæti, popúlismi og dónaskapur ráðherra og fulltrúa ríkisstjórnarinnar gagnvart Íslendingum í þessu máli er svo yfirgengilegur að ég óttast að sú sátt sem sennilega flestir vilja ná um sjávarútveginn færist fjær okkur en ekki nær okkur með þessu frumvarpi. Slík var hræðslan við málefnalega umræðu að vika var talin hæfilegur umsagnartími í þessu máli, vika. Mögulega væri hægt að hafa viku umsagnarfrest í máli sem augljóslega allir eru sammála um, en í svona risastóru máli er það ekki til að reyna að ná sátt um málið. Svona vinnubrögð eru auðvitað ekkert annað en yfirlýsing um að það sé enginn áhugi á að frumvarpið verði að góðum lögum. Tilgangurinn virðist alfarið sá að slá pólitískar keilur.
Fulltrúum ríkisstjórnarinnar hefur verið tíðrætt um einhverja skoðanakönnun þar sem því er haldið fram að um 90% landsmanna séu hlynnt hærri veiðigjöldum. Enginn veit hver spurningin var. Enginn veit niðurstöðuna um hversu mikil hækkun var talin ásættanleg. Kannski var ekki spurt um það en niðurstaðan gaf ríkisstjórninni byr undir báða vængi, að það væri nú pólitískt gott að klára þetta mál og leyfa sér ítrekað að halda því fram að út frá þessari skoðanakönnun sé þjóðin hlynnt þessu frumvarpi.
Stóra vandamálið er að spurningin hvort fólk sé sammála hærri veiðigjöldum og hvort fólk sé sammála frumvarpinu er tvennt algjörlega ólíkt. En ríkisstjórnin telur mikinn meðbyr með frumvarpinu og því spyr ég: Af hverju má þá ekki taka upplýsta umræðu, gefa eðlilegan umsagnarfrest, sýna greiningar á bak við þessa ákvörðun og vanda til verka svo að frumvarpið hafi ekki neikvæð áhrif og það verði raunhæfur möguleiki á að ná sátt um kerfið, ná sátt sem allir vilja ná um kerfið?
Við náum mögulega sátt um kerfið ef við horfum á það sem sameinar okkur og það er að flestir telja að það megi endurskoða veiðigjöld. En að það sé tengt við norskan veruleika sem á ekkert sameiginlegt við þann íslenska þegar kemur að sjávarútvegi er ekki til þess fallið að ná sátt um kerfið.
Forseti. Það hefur verið áhugavert að taka þátt í störfum þingsins þessa mánuði sem liðnir eru frá þingsetningu. Ég efa ekki að fleiri hér inni deili þeirri sýn. Ég bauð mig fram til þings vegna brennandi áhuga á landi og þjóð og til að berjast fyrir efnahagslegri og samfélagslegri þróun okkar sem hér búum, að Ísland viðhaldi þeirri hagsæld og velferð sem hér hefur verið byggð upp með þrautseigju fyrri kynslóða og skynsamlegum ákvörðunum sem skiptu sköpum fyrir hagsæld okkar sem hér búum. Á síðustu öld færðust Ísland úr því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu í það að verða meðal þeirra ríkustu. Beint og óbeint er það hlutverk Alþingis að efla velsæld, hagvöxt og verðmætasköpun í landinu með ákvörðunum okkar hér inni. Það hafa því verið mikil vonbrigði að þær tillögur sem hafa komið frá ríkisstjórninni snúist alls ekkert um þetta hlutverk heldur hverfist þær allar um aukna skattheimtu á þegnanna.
Sjávarútvegur er dæmi um atvinnugrein sem hefur haft bein áhrif á aukna velsæld þjóðarinnar. Grein sem skilaði litlu til þjóðarbúsins, naut styrkja úr sameiginlegum sjóðum, var á tíðum í eigu ríkis eða sveitarfélaga, rekstur var í járnum og gengið var fellt reglulega til að viðhalda afkomu í greininni. Skortur á kerfi til að stýra veiðum með tilliti til hagkvæmustu nýtingar leiddi til sóunar og ofveiði. Með skynsamlegum ákvörðunum á þessum vettvangi var innleitt stjórnkerfi framseljanlegra aflahlutdeilda sem náði tökum á þessum tveimur meginþáttum, sjálfbærri og hagkvæmri nýtingu fiskstofna. Í stað þess að vinna hér að enn frekari eflingu og uppbyggingu á greininni og hinum fjölmörgu stoðgreinum sem orðið hafa til hér á landi, eru í fremstu röð alþjóðlega og gríðarlega mikilvæg fyrir verðmætasköpun þjóðarbúsins er rýtingurinn tekin upp og stungið í bakið á mjólkurkúnni. Tekin eru upp óhagkvæmari kerfi við veiðar og lagðir eru auknir skattar á greinina með vafasömum viðmiðunum frá Noregi, óarðbæru norsku sjávarútvegskerfi, og án allrar greiningar á áhrifum hér á Íslandi sem sérfræðingar hafa þó bent á að muni verða veruleg og til hins verra, til hins verra fyrir þjóðina alla.
Miðflokkurinn er á þessu þingi til að hafa áhrif á framtíðarsýn fyrir samfélagið; öruggara, betra og hagfelldara samfélag sem viðheldur og eykur þrótt sinn í alþjóðlegri samkeppni þjóðanna. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja þjóðina fyrir vondum hugmyndum, þótt við vildum miklu frekar vinna að góðum hugmyndum um sameiginlega velsæld. Því vona ég að þessi umræða verði til þess að frumvarpinu verði verulega breytt, svo íslenskum sjálfbærum sjávarútvegi verði ekki breytt í norskan veruleika þar sem sjávarútvegur er ríkisstyrktur.
Nú hef ég bara þá tengingu við sjávarútveginn eins og flest okkar að tekjur greinarinnar skili sér í betra samfélagi fyrir okkur öll sem hér búum. Eflaust hefði ég svarað í skoðanakönnun að það mætti hækka veiðigjöldin eitthvað en ég hugsa samt að ég hefði fallið í „ég veit ekki“-hópinn ef mér hefðu ekki verið gefnar neinar forsendur um hvað hækkunin ætti að vera mikil. Mig grunar að flestir útgerðarmenn myndu meira að segja að svara slíkri spurningu á jákvæðan hátt, svo þessi 10% sem voru ekki hlynnt hækkun eru e.t.v. þeir sem eru sérstaklega á varðbergi gagnvart óljósum skattahækkunum.
Engar greiningar, allt óljóst og lítið um svör. Um hvað snýst þetta frumvarp raunverulega annað en að slá pólitískar keilur? Snýst það um hækkun veiðigjalda, leiðréttingu, meiri skatta í ríkissjóð, minni skatta í ríkissjóð, að auðvelda leiðina inn í Evrópusambandið, draga úr nýsköpun, þétta byggð, höfuðborgina, um afleidd áhrif, sanngirni, öfund eða eitthvað allt annað?
Er mögulega öfundin en ekki sanngirnin að drífa þetta frumvarp áfram? Því að ég sá auglýsingu frá Flokki fólksins þar sem segir, með leyfi forseta: Við erum ekki að gera neitt annað en að leiðrétta veiðigjöld. Meiri hluti þjóðarinnar stendur með því að þessar 15 fjölskyldur borgi eðlilega rentu fyrir aðgengi að auðlindinni okkar.
Þvílíkur popúlismi. Hver er á móti því að borgað sé eðlilegt verð? Enginn. Spurningin er hins vegar sú: Hvað er eðlilegt verð og hvenær förum við að skemma fyrir með óvandaðri og illa ígrundaðri lagasetningu? Ef þetta er viðhorfið, að sjávarútvegurinn snúist um 15 fjölskyldur, þá er ég ekki hissa á að þetta frumvarp sé komið fram með öllum þeim göllum sem því fylgja. Þvílík staðhæfing gagnvart skattspori greinarinnar, öllum sem lifa af sjávarútvegi og okkur öllum hinum sem tilheyra þeim rúmlega 100.000 fjölskyldum sem óbeint njótum góðs af íslenskum sjávarútvegi. Það eina sem vantar í ásakanir Flokks fólksins er að þau nafngreini þessar 15 fjölskyldur. Er kannski hugsunin að það sé betra að allir tapi frekar en að einhver hagnist?
Það er mikið undir og því bið ég fulltrúa ríkisstjórnarinnar að lyfta umræðunni upp úr því að hér sé einhver að taka stöðu með sérhagsmunum sjávarútvegsins. Á endanum snýst þetta um að taka stöðu með fólkinu hringinn í kringum landið, Íslendingum, stöðu með því að tekjur ríkissjóðs muni aukast með meiri hagkvæmni, betri rekstri, að fjármagn myndist til fjárfestinga, nýsköpun nái að blómstra — og við skulum hafa það alveg á hreinu að það gerist bara með sanngjörnum sköttum og sanngjarnri álagningu gjalda. Þess vegna skiptir máli þegar við erum að tala um lífæð þjóðarinnar að við vitum eins vel og mögulegt er hver áhrif lagabreytinga á greinina til skemmri og lengri tíma eru.
En af hverju þorir ríkisstjórnin ekki að fá staðreyndir upp á borðið? Í ljósi þess að nú virðist vegabréfið ekki kólna milli þess sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar skjótast til Brussel þá velti ég fyrir mér hvort staðreyndir um sjávarútveg séu helst komnar þaðan, frá löndum þar sem sjávarútvegur er víðast hvar ríkisstyrktur. Ef það er staðan þá vonandi fylgjast ráðherrarnir með frá Brussel eða hvar sem þeir eru því að alla vega virðast þeir ekki vera hér í húsi að taka þátt í umræðunni, umræðu sem er strax farin að sýna fram á að svo margt stenst enga skoðun í þessu frumvarpi.
Hæstv. forsætisráðherra minntist á í óundirbúnum fyrirspurnatíma að arðurinn rynni að mestu inn á höfuðborgarsvæðið. Staðreyndin er sú að það eru ekki margar atvinnugreinar umfangsmeiri á landsbyggðinni heldur en á höfuðborgarsvæðinu en það á aldeilis við um sjávarútveginn því að í kringum 80% af atvinnutekjum vegna veiða og vinnslu renna til einstaklinga sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Því til viðbótar bendi ég á tölur, með leyfi forseta, frá KPMG en þar kemur fram að skattspor á meðalfjölda íbúa á höfuðborgarsvæðinu af sjávarútvegi er um 296.000 kr. á meðan það er rúmlega 2,2 millj. kr. á hvern íbúa á landsbyggðinni.
Tölurnar tala sínu máli og þess vegna er svo gríðarlega mikilvægt í svona stóru máli sem mun hafa áhrif á byggðir landið um kring að það liggi fyrir greiningar um áhrifin. Það er ekki hægt að standa hér í fílabeinsturni höfuðborgarsvæðisins þar sem áhrifin af atvinnutekjum í sjávarútvegi versus heildaratvinnutekjur eru í kringum 2% á meðan áhrifin t.d. á Vestur- og Austurlandi eru 15–20% en þá á eftir að taka tillit til afleiddra tekna og þar eru svæði þar sem sjávarútvegur stendur undir 30–50% af atvinnutekjum. Eina svarið til byggða landsins er hins vegar að þær eigi að fá innviði í staðinn. Hvar er sú sviðsmyndagreining? Hvaða byggðir fá betri innviði, hvaða ekki? Hvar verða göng byggð og hvar ekki? Á meðan þetta liggur ekki fyrir er þetta innantómt tal og eftir stendur að sjávarþorp landsins eru í óvissu, óþarfaóvissu.
Svo langar mig aðeins á lokamínútunum að ná að ræða hér þessa Noregstengingu. Í fyrsta lagi er fiskur ekki eins og olía sem er voða svipuð alls staðar. Alveg sama þótt Evrópusambandið vilji meina að fiskur sé eins alls staðar ef hann heiti það sama, þá bara er það ekki rétt. Staðreyndin er sú að við erum hér að ræða meira og minna göngufiska sem eru í mismunandi formi eftir ýmsum þáttum; hvenær ársins þeir eru veiddir, hvar þeir eru veiddir o.s.frv. En nei, ríkisstjórnin ætlar að tengja okkar kerfi sem hefur verið svo einstakt á heimsvísu og algerlega sjálfbært við ósjálfbært, ríkisstyrkt norskt kerfi.
Hvað næst? Ætlar ríkisstjórnin að skattleggja íslenskan landbúnað út frá verði sem fæst fyrir erlendar landbúnaðarvörur óháð því hvar við stöndum betur að vígi og hvar ekki?
Frú forseti. Við hreinlega verðum að vinna þetta mál miklu betur og endurskoða þessa Noregstengingu ef einhver sátt á að nást um sjávarútvegsmál á Íslandi.