156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:38]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirlitsgóða og greinargóða ræðu. Hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kemur akkúrat inn á einn af lykilþáttunum í þessari í rauninni reiknivillu, þessari villu sem er í útreikningum þessa gjalds, þ.e. að miða við norsk verð. Að miða í fyrsta lagi við atvinnugrein sem borgar ekki kolefnisgjald, borgar ekki vörugjöld, borgar ekki auðlindaskatt eða hafnargjöld eða nokkuð annað sem er lagt á íslenskan sjávarútveg, enga sértæka skatta. Að miða við verðlagningu þar sem skipin fara út, eru jafnvel bara einn dag, kasta nót og koma svo inn aftur á meðan íslenski flotinn þarf að fara norður í Smugu þar sem þrjú skip eru saman um að veiða í eitt skip og svo koll af kolli af því að það er langt að fara. Eins og hv. þingmaður bendir réttilega á er þarna algerlega tveimur ólíkum hlutum að saman að jafna; norskur makríll veiddur í nót á einum degi versus makríllinn sem Íslendingarnir eru að veiða.

Því vil ég spyrja hv. þingmann: Hvað telur (Forseti hringir.) hann að valdi því að stjórnvöld, hæstv. ríkisstjórn, hafi ákveðið að fara í þessa vegferð að miða við norsk verð?