156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:41]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í framhaldi af þessu, af því að hv. þingmaður nefnir Evrópusambandið, þá er það kannski bara markmiðið, þ.e. einmitt að setja svo þungar og miklar álögur á íslenskan sjávarútveg að það verði í rauninni bara fagnaðarefni að ganga í Evrópusambandið þar sem ekkert af þessum gjöldum er borgað, þar sem ekki er borgaður neinn auðlindaskattur, þannig að sjávarútvegurinn muni kannski bara fagna því sem og aðrar atvinnugreinar sem væri búið að skattleggja í botn, að komast inn í Evrópusambandið.

Þá að seinni spurningu minni til hv. þingmanns. Nú liggja ekki fyrir neinar greiningar um áhrifin á sveitarfélögin í landinu, engar greiningar. 26 sveitarfélög eru búin að senda inn neikvæðar umsagnir. Nú síðast í gær sendi Vestfjarðastofa frá sér ítrekun. Þrátt fyrir hækkun á afslættinum þá eru samt miklar áhyggjur af áhrifum frumvarpsins. Hvað finnst hv. þingmanni um þessar áhyggjur sem koma fram í því sem sveitarfélögin eru að senda og Vestfjarðastofa (Forseti hringir.) og fleiri varðandi áhrif frumvarpsins?