veiðigjald.
Forseti. Já, þetta er allt á sömu bókina lært. Það eru engar greiningar. Það eru ekki einu sinni greiningar á áhrifum, ekki á byggðirnar eða á nýsköpun, hvort skatttekjur aukast eða minnka. Það eru engin svör. Aðalatriðið er að leggja þetta fram, ná þessu í gegn og eins og ég sagði er það til að slá pólitískar keilur. En auðvitað vekur það athygli að engin greining hefur verið gerð af hálfu stjórnvalda á því hvaða áhrif þetta hefur í ljósi þess að 2.300 störf verða til út af umræddri nýsköpun í sjávarútvegi. Þetta er algerlega óboðlegt.