veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir góða ræðu, kjarnyrta og vel orðaða. Ég sakna þess hve fáir stjórnarliðar taka þátt í þessari umræðu í salnum í dag. Þetta er mikilvægt mál og skiptir sveitarfélögin úti á landi sérstaklega miklu máli og maður heyrir varla í þingmönnum stjórnarinnar sem eru úr þessum sveitarfélögum sem hafa sent inn áhyggjur sínar varðandi þetta frumvarp. Heildarskattspor fyrir og eftir er í raun lykilatriði: Hvert verður heildarskattsporið eftir þessa aðgerð og hvert var heildarskattsporið fyrir aðgerðina? Þessu getur ríkisstjórnin ekki svarað. En mig langar að spyrja hv. þingmann því nú hafa lífeyrissjóðirnir þegar lækkað eignarhlutfall sitt í sjávarútvegsfyrirtækjunum um meira en 8 milljarða, sem er meira heldur en þessi aukni skattur kemur til með að vera: Hvað finnst hv. þingmanni um það?