156. löggjafarþing — 38. fundur, 8. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Forseti. Takk fyrir góða spurningu. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta má því miður segja að hafi verið viðbúið varðandi lífeyrissjóðina. Þegar þú leggur fram svona frumvarp, þar sem sérfræðingar segja að skattspor minnki við frumvarpið, þá er þetta viðbúið, þannig að því miður eru sameiginlegir sjóðir okkar, lífeyrir okkar, lægri í dag en í gær. Já, mér finnst þetta mjög slæmt og mér finnst að næsta spurning ætti kannski að vera: Ertu tilbúinn að samþykkja frumvarpið þótt skattspor lækki?