veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott svar við andsvari mínu og kem þá með andsvar öðru sinni. Allt þetta byggist á einhverju sem eru skattahækkanir en ríkisstjórnin kallar leiðréttingar, á því að reiknað sé út norskt verð. Það er grunnurinn í öllum málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar. Í minnisblaði sem kom frá forsætisráðuneytinu inn til ríkisstjórnarinnar stendur orðrétt, með leyfi forseta:
„Báðar aðferðir, norska og íslenska,“ — sem sagt til að meta verð — „innihalda hvata sem skekkt geta verðmyndun. Því er í raun erfitt að fullyrða um að markaðsverð sé til staðar í löndunum tveimur.“
Hvernig rímar þetta við allan þann málatilbúnað sem ríkisstjórnin byggir þetta mál sitt á, einhvers konar leiðréttingu sem er í raun dulbúnar skattahækkanir ofan á það verð sem er algerlega óljóst (Forseti hringir.) hvernig er myndað?