156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:48]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sína framsögu. Mér finnst þessi Evrópusambandstenging áhugaverð því auðlindamálin hafa auðvitað verið okkar meginástæða fyrir að fara ekki í Evrópusambandið; það að hafa okkar afnot af okkar fiskimiðum, vera ekki að framselja okkar ákvarðanarétt um hvað er veitt mikið á hverju ári til Brussel. Það hefur verið meginástæðan af því þetta eru miklir hagsmunir. Greinin hefur gríðarlega mikil áhrif á okkar samfélag. Hv. þingmaður fjallar um greiningar og gögn og mig langar til að spyrja hv. þingmann: Ef gagna- og greiningarvinna væri unnin vel og það kæmi í ljós að það væri svigrúm til að hækka veiðigjöld eða fá einhvern aukaábata, teldi hv. þingmaður að það kæmi til greina, að því gefnu að gögn og greiningar sýndu fram á það?