156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég verð að þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur sérstaklega fyrir þessa spurningu því að þetta er meginforsenda þess að hér náist sátt. Við erum held ég flest sammála að það sé til svigrúm. En hvað er það? Meira að segja útgerðin sjálf hefur verið sammála því að það sé svigrúm. En það vantar allar greiningar þannig að ef þær kæmu þá væri hægt að ákveða hvernig væri best að þessu staðið, hversu mikið svigrúm væri. Þannig að já, ég tel að það eigi að skoða það og að öllum líkindum er svigrúm miðað við að útgerðarmenn sjálfir telja að það sé svigrúm. Einnig tel ég að spurningarnar sem hv. þingmaður kom með í ræðu sinni í gær séu mjög góðar og við þurfum að fá svar við þeim og það myndi vera skref í rétta átt.