156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:50]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar svör. Mig langar aðeins til að koma að nýsköpunarhlutanum því að vissulega hefur það verið einstakt við sjávarútveginn hvað hann hefur verið duglegur í að fjárfesta í fyrirtækjum eins og Kerecis, Genís og öðrum. Ég hef tekið eftir því að ríkisstjórnin ætlar að skera niður þegar við erum að horfa á nýsköpun heilt yfir. Þannig að ég velti því fram og spyr hv. þingmann: Telur hv. þingmaður að það væri mögulega leið til sátta að framlag sjávarútvegsins til nýsköpunar væri að einhverju leyti talið til tekna sem, hvað skal segja, hluti af veiðigjöldum í raun og veru?