veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisræðu. Það er víða komið við, enda erum við búin að vera að ræða þetta mál bæði á þriðjudag og í allan dag þannig að þetta er orðin mikil umræða. Varðandi norska sjávarútveginn, þ.e.a.s.. tenginguna við ríkisstyrki í Noregi og hættuna á að hér verði bara flutt meira af gámafiski eða flutt út til vinnslu annars staðar, til fiskvinnslu annarra ríkja, Póllands, Kína eða hvað það er — er þetta ekki hin stóra hætta varðandi framhaldið, að við missum fiskvinnsluna úr landi? Það er í grunninn bara — ég tek undir með hv. þingmanni að það vantar allar greiningar í málið og ég held að það sé gríðarlega eða ótrúlega stórt verkefni inni í atvinnuveganefnd að takast á við þetta mál. Þær greiningar sem vantar, (Forseti hringir.) gögn og hvaða áhrif þetta hefur á svæðið utan Hvítár-Hvítár þar sem 15% landsmanna búa.