veiðigjald.
Herra forseti. Það er náttúrlega áhugavert sem hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu og hefur verið rætt hér fyrr í dag og á þriðjudaginn. Það er þetta skattspor, raunverulega, af sjávarútveginum. Annars vegar á höfuðborgarsvæðinu, 296.000 kr. ef ég man rétt, og síðan hins vegar fyrir utan Hvítár-Hvítár svæðið, úti í hinum dreifðu byggðum, upp á rúmar 2,2 milljónir — þetta skattspor er sjö til áttfalt hærra en á höfuðborgarsvæðinu. Þannig að þetta er svo sannarlega landsbyggðarskattur sem við erum að ræða hér, grundvallaratriði að hafa það á hreinu að hér er um landsbyggðarskatt að ræða. Það er einhvern veginn þannig, það sem við erum að kynnast í stærstu málum þingsins á þessu vori, líka í tengslum við búvörulög sem við erum að takast á við inni í atvinnuveganefnd — það er gríðarlega hart sótt að landsbyggðunum, líka í því máli og fleiri málum sem eru hér í þinginu. Er hv. þingmaður sammála þeirri nálgun?