veiðigjald.
Já, ég er sammála því. Ég hef virkilega velt mikið fyrir mér af hverju ríkisstjórnin fer fram með þessum hætti. Af hverju ekki bara að raunverulega reyna að ná sátt, fá greiningar og vinna þetta vel? Málið er auðvitað það að þessir ríkisstjórnarflokkar boðuðu fyrir kosningar að hér yrði Evrópusambandið sett til hliðar. Þau fengu fullt af atkvæðum; þingmenn úti á landi sem hugsanlega vita út á hvað verðmætasköpun gengur hefðu ekki kosið þessa flokka ef þeir hefðu vitað hvers lags úlfar í sauðargæru þeir væru. Hvað gerist nú? Það er varla búið að kjósa, það er rétt orðin ný ríkisstjórn, og hér á að ganga inn í Evrópusambandið. Þannig að já, því miður, þá óttast ég að þetta verði ekki fyrsta mál sem mun bitna á landsbyggðinni.