156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:57]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á veiðigjöldum, aflaverðmæti í reiknistofni. Þetta er önnur ræðan hjá mér um þetta mikilvæga og stóra mál.

Virðulegi forseti. Sveitarfélögin í Norðausturkjördæmi hafa talað og þau hafa talað skýrt. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækkun veiðigjalda er ekki bara illa útfært, það er hreint út sagt glapræði. Norðurþing segir í umsögn sinni að hækkunin muni hafa verulega neikvæð áhrif á samfélagið, atvinnulífið og framtíð svæðisins. Þar segir orðrétt:

Hér er vegið að undirstöðu byggðanna og lífskjörum fjölskyldna sem hafa valið að byggja framtíð sína á þessu svæði.

Það segir sína sögu þegar heilt sveitarfélag lýsir yfir slíkum áhyggjum. Í umsögn Fjarðabyggðar kemur fram að sveitarfélagið verði fyrir margra milljarða króna tapi á ári. Fjarðabyggð varar við því að afleiðingin verði ekki aðeins tekjutap heldur líka minni fjárfestingar, minna svigrúm til nýsköpunar og færri störf. Hér talar eitt stærsta sveitarfélagið á Austurlandi skýrt um að framtíð byggðanna sé í húfi. Sveitarfélagið Vopnafjarðarhreppur, herra forseti, er sömu skoðunar og í umsögn þess í samráðsgátt kemur fram að fyrirhuguð hækkun geti þýtt að fiskvinnslan á staðnum verði ekki samkeppnishæf lengur. Það yrði þá spurning um tíma hvenær fyrirtæki flyttu sig annað, jafnvel úr landi. Eru það skilaboðin sem ríkisstjórnin vill senda til fólks á Vopnafirði?

Virðulegi forseti. Þetta eru ekki einstök tilvik heldur mynstur sem endurtekur sig í umsögnum sveitarfélaga víða um Norðausturkjördæmi. Langanesbyggð, Dalvíkurbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Fjarðabyggð, Norðurþing, Fjallabyggð, Múlaþing og Grýtubakkahreppur segja öll það sama: Frumvarpið er atlaga að atvinnulífinu. Það ógnar fjárfestingu, atvinnuöryggi og samfélögunum sjálfum.

Sveitarfélögin eru síður en svo ein á þessu máli. Greining Ragnars Árnasonar, prófessors emerítuss og doktors í hagfræði, staðfestir afleiðingarnar. Ragnar segir í sinni greiningu í samráðsgátt að fyrirhuguð hækkun muni draga verulega úr hagkvæmni, samkeppnishæfni og sjálfbærni íslensks sjávarútvegs. Hann bendir á að veiðigjöld séu þegar mjög há í alþjóðlegum samanburði og að frekari hækkun muni skapa verulega hvata til þess að flytja vinnslu úr landi. Hækkunin verði beinlínis hvatning til að sniðganga íslenskt hagkerfi og vinnuafl.

Virðulegi forseti. Það er grundvallaratriði að skattstefna ríkisins stuðli að aukinni verðmætasköpun, ekki öfugt. Þetta frumvarp gerir það ekki. Það er beinlínis til þess fallið að draga úr fjárfestingu, draga úr nýsköpun, draga úr atvinnu og draga úr lífsgæðum fjölskyldna víða um Norðausturkjördæmi og landið allt. Hér þarf að stíga varlega til jarðar, hér þarf að gæta hófs, skynsemi og virða þau samfélög sem byggja á þessari lykilatvinnugrein. Við hvetjum ríkisstjórnina til að stíga skref til baka, hlusta á sveitarfélögin, hlusta á sérfræðingana og endurskoða þessar vanhugsuðu skattahækkanir.

Forseti. Ég hef gríðarlegar áhyggjur af ýmsum málum sem núverandi ríkisstjórn, í skjóli þess meiri hluta sem nú er í þinginu — þetta mál sem hér er til umræðu, gríðarleg hækkun á veiðigjöldum. Það er hætt við að afleiðingar þessa frumvarps muni hafa mestu og verstu afleiðingarnar í litlu sjávarútvegsþorpunum, á sjávarútvegsbæina víðs vegar um landið. Það vantar ítarlegar greiningar í frumvarpið um hvaða áhrif málið hefur á byggðirnar sem lenda í slæmum málum. Áhrifin koma fyrst og fremst á sjávarútvegsbyggðir utan Hvítár-Hvítársvæðisins þar sem 15% íbúa landsins búa. Það hefur komið fram í þessari umræðu hér í þingsal að um 80% áhrifa frumvarpsins koma fram á landsbyggðunum utan Hvítár-Hvítársvæðisins.

Herra forseti. Það er gríðarlega stórt mál sem atvinnuveganefnd þarf að takast á við á næstu vikum í þessu máli og ég vona svo sannarlega að umsagnaraðilar hafi þá tækifæri til að undirbúa sig eða skrifa umsagnir (Forseti hringir.) þannig að það verði ekki gert með sama hætti og í samráðsgátt stjórnvalda en það var hneisa hvernig var staðið að því að auglýsa svo stórt mál til umsagnar. — Ég hef lokið máli mínu.