veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans síðari ræðu. Það verður að segjast eins og er að þetta er orðin löng og ströng umræða, komin á þriðja dag. Hún hefur þroskast mikið og dýpkað. Hún þroskast og dýpkar með hverri ræðunni sem haldin er, verður maður að segja. Raunar er hún orðin svo þroskuð og djúp að það er farið að blanda Evrópusambandinu inn í umræðuna hérna á hinu háa Alþingi og talið að það sé búið að finna út einhverjar leiðir til að troða okkur í Evrópusambandið gegn okkar vilja með samþykkt þessa frumvarps. Það fannst mér nú afar athyglisvert, svo ekki sé meira sagt.
En mig langaði bara að spyrja hv. þingmann út í það hvort hann teldi ekki eðlilegt að þegar við ræðum svona sterka atvinnugrein, mikilvæga atvinnugrein sem byggir á auðlindanýtingu sem er í eigu þjóðarinnar, sem við erum öll sammála um að sé mikilvæg, að þau auðlindagjöld sem rukkuð eru af atvinnugreininni gerðu eitthvað aðeins meira en að standa undir þeirri þjónustu sem ríkisvaldið er að sinna í kringum þessa atvinnugrein. Væri ekki allt í lagi að eitthvað af þeim fjármunum sem fengjust út úr auðlindagjöldunum úr þessu veiðigjaldi, leiðréttingu veiðileyfagjaldsins, færi í eitthvað annað heldur en þá þjónustu sem verið er að veita greininni sjálfri?