veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágætt andsvar. Ég ætla ekki að tala mikið um Evrópusambandið, ég var ekki alveg með það í minni ræðu en gæti tekið langar ræður um það. Auðlindagjöld og auðlindanýting á þessu í eigu þjóðarinnar og allt það, mjög gott mál. En þetta mál snýst ekkert um það. Það er búið að gera einhverja ótrúlega hluti, það er búið að gera tvennt í þessu. Það er búið að segja við fólk: Heyrðu, við ætlum að fá nýja vegi ef þetta verður hækkað. Þá bara koma vegir úti um allar trissur. — Er ég með eina og hálfa eða tvær?
(Forseti (IngÞ): Tvær. )
Tvær, ókei takk, forseti. Þetta með vegina, ég ræddi það mikið með fjármálin og ríkisfjármálin, lög um opinber fjármál. Þetta stenst engan veginn, þar er ekki markaður og allt það. Hins vegar varðandi auðlindagjöldin til að greiða þá þjónustu sem ríkið veitir, eða hvernig við orðum það, eins og Hafró, Landhelgisgæslan og annað, þá er það nokkurn veginn á jöfnu, skilst mér, í tölunum. Þetta er reyndar þáttur sem sá sem hér stendur hyggst taka betur fyrir inni í atvinnuveganefnd. En í stóru myndinni held ég að þetta snúist um það hvað eðlileg auðlindagjöld séu. Við erum aðeins búin að ræða þessar skoðanakannanir sem hafa verið gerðar. Þær eru náttúrlega mjög leiðandi í spurningum og öðru. Hver myndi ekki svara með sama hætti ef það væri einhver annar sem ætti að greiða en ekki þú sjálfur, í gegnum skatta eða hvað það væri? Þannig að ég gef ekkert fyrir það í sjálfu sér og þá nálgun. Hins vegar er stóra málið og ég held að allir hv. þingmenn og þjóðin séu þar, að það eigi að greiða eitthvert auðlindagjald. Spurningin er hversu hratt og mikið það á að vera. (Forseti hringir.) Það er sú nálgun sem ég fer. Þegar á að fara í að tvöfalda þau þá er það nálgun þar sem menn fara svolítið hratt yfir í staðinn fyrir að gera þetta í smærri skömmtum til að takast á við þetta. (Forseti hringir.) Hjá Samfylkingunni var umræðan fyrir kosningar með allt öðrum hætti en menn upplifa í þessu frumvarpi. Það er það sem við erum að ræða líka að hluta til. Þar var ekki talað um að tvöfalda. Það var talað um að tvöfalda þar á tíu árum eða svo.